Leggjum bílunum

Það væri frábært ef við bifreiðaeigendur gætum tekið okkur saman um að leggja bifreiðunum í nokkurn tíma í mótmælaskyni við þessum eldsneytis og skattahækkunum.

Ég er viss um að ef 2-3-4þúsund bifreiðaeigendur myndu taka númerin af og leggja  þau inn til geymslu, kæmi það við kaunin á olíu og tryggingafélögum og mundi hafa áhrif á skattinn til ríkisins.

Ég skora á sem flesta að taka þetta til athugunar og vita hvort þeir geti ekki farið til vinnu á reiðhjóli, í strætó eða bara gengið. 

Fyrir árs innlögn á númerum einnar bifreiðar, er hægt að kaupa tvö til þrjú reiðhjól.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband